Árið 2009 gert upp og hvernig verður 2010

Árið 2009 var ansi merkilegt ár fyrir margar sakir. Margir vilja meina það að þetta ár hafi verið ár breytinga og uppgjörs, en þegar maður skoðar afleiðingar hrunsins út frá sjónarmiði eyjamanna, þá er nú varla hægt að segja það. Hér eru enn sömu aðilarnir sem ráði einu og öllu í stofnunum og peningamálum eyjamanna og þrátt fyrir að margir viðurkenndir hagfræðingar og prófessorar hafi ítrekað sagt að ein af aðal ástæðum hrunsins hafi verið frjálsa framsalið á aflaheimildum, þá eru menn hér í eyjum á fullu í að verja þetta kerfi. Peningavaldið er afar sterkt. Meira að segja eru virtustu útgerðarmenn í eyjum farnir að tala um að það megi ekki breyta þessu kerfi vegna þess, að 90-95% aflaheimilda hafi skipt um hendur síðan kerfið var sett á, en ég hlýt að spyrja: Hvar var öll þessi stórútgerð hér í eyjum þegar kvótanum var úthlutað í fyrsta skipti? Voru þessi aðilar ekki flestir í útgerð þá? Vissulega hafa hörku duglegir útgerðarmenn í eyjum sýnt mikið áræði við að fjárfesta í aflaheimildum til að bæta stöðu sína, en er kerfið þar með heilagt? Og eru hagsmunir okkar allra fólgnir í því að menn fái að halda áfram að veðsetja kvótann?

En hvernig var árið 2009 hjá mér?

Byrjun ársins var afar góð, því að í janúar og febrúar var einhver besta tíð, sem ég hef upplifað á mínum útgerðarferli og var ég með yfir 20 róðra á þessum tveimur mánuðum í mjög góðu fiskiríi. Sumarið var líka ágætt, en haustið hefur verið svona upp og niður, en samt betra en oft áður. Stærsta breytingin er hins vegar sú, að í öll þessi ár sem ég hef róið hér í eyjum (23 ár) þá hefur vetrar fiskiríið á línu verið á svipuðum slóðum (dýpi) en að undanförnu hins vegar hefur besta fiskiríið verið þar sem hér á árum áður aldrei fékkst bein. Furðuleg þróun og maður er svona pínulítið uggandi yfir því hvar þetta endar. 

Pólitíkin spilaði óvenju stórt hlutverk hjá mér í byrjun ársins. Í byrjun febrúar tilkynnti ég félögum mínum í Frjálslynda flokknum, að ég hefði engan sérstakan áhuga eða metnað til þess að vera á lista, en ég gerði mér hins vegar vel grein fyrir því að flokkurinn ætti verulega undir höggi að sækja og ég væri tilbúinn að hjálpa til eftir bestu getu. Málin þróuðust hins vegar töluvert öðruvísi en ég bjóst við og endaði ég með því að vera í öðru sæti flokksins fyrir kosningarnar s.l. vor vegna fjölda áskorana og þá kannski sérstaklega frá vini mínum Grétari Mar sem leiddi framboðið. Setti ég fram nokkur skilyrði um hvernig ætti að vinna í kosningabaráttunni. Ekkert af þeim gekk eftir og má orða þetta sem svo, að við í raun og veru byrjuðum aldrei kosningabaráttuna. Við náðum aldrei að kynna stefnuna af neinum krafti og niðurstaðan var því ekkert sem kom mér á óvart. Lærdómurinn sem ég dreg af þessari kosningabaráttu okkar er kannski fyrst og fremst sú, að ef menn ætla að ná árangri þá verða menn að gjöra svo vel og hafa fyrir því. Ef það er hægt að tala eitthvað gott um úrslitin, þá er það kannski fyrst og fremst það að við getum svo sannarlega gert miklu betur. Úrslitin að öðru leyti komu mér heldur ekki á óvart, vinstri flokkarnir unnu ágætan sigur, en ég held að flestir landsmenn geri sér nú grein fyrir því í dag að sá sigur er ansi dýru verði keyptur fyrir landsmenn. Sjálfstæðisflokkurinn galt afhroð á meðan Framsóknarflokkurinn hlaut ágæta kosningu, það kom mér heldur ekki á óvart, enda var alveg augljóst í kosningabaráttunni að Framsóknarmenn gerðu allt til þess að höfða til þeirra Sjálfstæðismanna sem ekki gátu kosið Sjálfstæðisflokkinn.

Lundavertíðin, ef það er hægt að kalla þetta lundavertíð, er merkilegt nokkuð að þetta þróaðist nákvæmlega á þann hátt sem ég spáði. Lítið varp í byrjun, síðan kom mikið af síli þegar leið á júní, lundinn tók við sér og byrjaði að verpa á fullu, en í fótspor sílisins kom makríllinn og þar með var sílið búið og í framhald af því drapst meiri hlutinn af pysjunni. Erpur og félagar eru enn við sama heygarðhornið og ótrúlegt að hlusta á manninn segja aftur og aftur, veiðar á lunda hafa ekkert með pysjuna að gera, en við mælum samt gegn veiði. Lundastofninn á Íslandi skiptir mörgum tugum milljóna, ég tel hins vegar ekki verjandi að taka aftur upp frjálsar lundaveiðar í Vestmannaeyjum, en tel hins vegar afar mikilvægt að halda í hefðina og leyfa veiðar í amk. 10-15 daga, því lundinn sér um sig og merkilegt hvað lítið hefur verið fjallað um þá staðreynd, að nú þegar hefur töluvert af merktum lunda í Vestmannaeyjum veiðst fyrir norðan land. Einnig er merkilegt að ekkert skuli hafa verið fjallað um þá staðreynd, eftir því sem mér er sagt, þá hafi þó sú pysja sem komst á legg bjargast vegna þess að lundinn var farinn að bera í hana gulldeplu. En varðandi skýrslu Erps fyrir sumarið 2009, þá er ég búinn að lesa hana og er hún sami brandarinn og undanfarin ár. 

En hvernig verður 2010?

Kosningar eru í vor til bæjarstjórnar. Í dag er fremur óljóst hvaða flokkar munu bjóða fram, nema að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkurinn. Við í Frjálslynda flokknum höfum einfaldlega lýst því yfir að við stefnum að því að bjóða fram. Til þess að svo megi verða, er alveg ljóst að það verður ekki gert á sömu forsemdum og fyrir 4 árum síðan og í dag get ég ekki sagt annað en það, að við vissulega getum boðið fram, en ég tel persónulega að til þess þurfi að koma til liðs við okkur fleira fólk. Augljóslega er það mjög erfitt, skiljanlega þegar við horfum á þá staðreynd að stóru framboðin tvö hafa hér högl og tögl í öllu og meirihluta flokkurinn aldrei áður sett það fram á skýrari hátt hverju það skilar ef menn styðja þann flokk eins og á síðasta kjörtímabili, samanber ráðningar í störf á vegum bæjarins.

Ég lofaði því í athugasemd á blogginu að setja nokkur orð um hvaða tækifæri ég sæi hugsanlega með Bakkafjöru. Það er enginn vafi á því að ef vel tekst til, þá er að mínu mati stærsta sóknartækifæri eyjamanna tengt Bakkafjöru ferðaþjónustan, en ég held þó að þar sé um töluvert ofmat að ræða, nema ef menn ráðast í einhverskonar fjárfestingu eða gera eitthvað sem skapað getur eyjunum sérstæðu umfram aðra landshluta. Vissulega höfum við eyjarnar, fuglalífið, eldgosið og svo mætti lengi telja, en þetta er hægt að sjá á nánast hverju einasta horni á landinu öllu, en hvernig lýst ykkur á ef við orðum þetta svona: Komdu til Vestmannaeyja, skoðaðu fuglalífið og fjöllin, Pompei norðursins, söfnin, farðu hringferð á bát í kringum eyjarnar, skrepptu í sjóstöng og komdu svo í GULA KAFBÁTINN og skoðaðu þetta neðansjávar. Neðansjávar hellana, allt lífið í kringum eyjarnar, horfðu á hvalina eltast við síldartorfur og súluna stinga sér í veiði neðansjávar. Sérstaða með sérstöðu tel ég að Landeyjarhöfn gæti orðið mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna. Vissulega eru margar hugmyndir í loftinu, en þegar ég fór til Tenerife fyrir tveimur árum síðan, var það fyrsta sem ég ákvað að ég yrði að prófa þegar ég sá hvað var í boði var ferð með kafbát. Þetta var klukkutíma ferð og farið niður á 30 faðma dýpi og fyrir þetta borgaði ég þá 4500 krónur og fannst það ekki mikið. Það er hins vegar nokkuð ljóst að svona dæmi er afar dýrt og mig minnir að þessi 60 manna kafbátur sem við fórum í, hafi átt að kosta á þriðja milljarð. Dýrt dæmi, en afar spennandi og spurning hvort að ekki hefði verið sniðugt að skipa einhverskonar nefnd á vegum bæjarins með hagsmunaaðilum, fjárfestum og aðilum úr bankakerfinu til að skoða svona dæmi. 

Annað sem mig langar að nefna, mér þótti mjög áhugavert að sjá núna í haust rannsóknir, þar sem kannaður er möguleikinn á því að framleiða rafmagn þar sem vatn og sjór mætist. Ég er eins og örugglega margur eyjamaðurinn mjög áhugasamur um möguleikann á því að nýta vindinn og straumana við eyjar og í mínum huga ekki spurning að í framtíðinni er hugsanlega eitt stærsta tækifæri okkar fólgið í þróun á þessum möguleikum og svo við setjum þetta upp á svolítið öfgafullan hátt, rosaleg væri nú flott að við gætum framleitt það mikið rafmagn að við gætum t.d. hafið ræktun á okkar eigin ávöxtum og grænmeti í gróðurhúsum suður á eyju, að maður tali nú ekki um þann möguleika að framleiða nægilegt rafmagn fyrir íbúa bæjarins og gera okkur þannig að öllu leyti sjálfbær að þessu leyti, afar spennandi og um leið myndi þá opnast sá möguleiki að hér væri hægt að byggja upp sambærilega stofnun og er í Hveragerði, einhverskonar náttúru og heilsustofnun þar sem hlúð væri að líkamlegri og andlegri heilsu landsmanna, eða eins og síðasta atvinnumálanefnd orðaði það: Heilsutengda heilsugæslu. Spennandi kostur, en eins og allt annað, afar dýrt að starta einhverju svona, en ég ætla að fara inn í nýja árið með þá von í brjósti að eitthvert framboðið í vor komi fram með einhverja hugmynd og þá helst fjármagnaða annar staðar frá, sem skapað geti nokkurn fjölda starfa hér í bæ, sem ekki væru tengd sjávarútvegi.

Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla.

Meira seinna . 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt ár Georg og takk fyrir pistilinn. Ég er ekki sammála því að við höfum ekki unnið í kosningabaráttunni. Hún var bara afar stutt og snörp því miður. Ég kom til Eyja og það var nú þannig að það var ekki tækifæri til að flytja sína framboðsræðu. Einn blaðamaður mætti og ekki var merkileg uppskera eftir hann.  Það er eitt sem þú getur ekki um í sambandi við Eyjar og það er golfparadísin sem er eitt best varðveittasta leyndarmálið í golfheiminum. Yndislegur völlur sem margir vilja spila aftur og aftur eftir að þeir hafa uppgötvað hann. Bestu kveðjur og takk fyrir móttökurnar í umræddri heimsókn. Kolla. 

Kolbrún Stefánsdóttir, 2.1.2010 kl. 22:26

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl kolla , ég er sammála þér með golfvöllinn en hann er nú þegar einkvað sem mjög margir þekkja .

kosningabaráttunni töpuðum við svo sannarlega það er ég einfaldlega búinn að viðurkenna fyrir sjálfum mér og öðrum en við hefðum getað gert betur svo sannarlega . kv .

Georg Eiður Arnarson, 2.1.2010 kl. 23:31

3 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Gleðilegt ár  til ykkar og þökk fyrir þau gömlu. Tek undir með Gogga, við gerðum ekki okkar besta. Því miður er  því rödd Frjálslynda ekki á þingi núna. Hennar er virkilega þörf  nú og í framtíð.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 3.1.2010 kl. 17:12

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Hanna Birna. Ég segi bara fyrir mig að ég fór í fjöldamörg pallborð á fundum sem haldnir voru í bænum, heimsótti vinnustaði og auk þess skrifaði ég í blöðin og sendi út fjöldapóst. Ef þið hafið ekki gert það sem þið gátuð þá er ég ekki að skilja hversvegna það var. Við í FF áttum við mikinn mótbyr að stríða frá okkar félögum sem höfðu allt illt á hornum sér eins og þið bæði vitið. Ég er fremur á því að þjóðin hafi skotið boðbera illra tíðinda eins og stundum er gert.

Þjóðin kaus og þjóðin fékk það sem hún vildi. Amen

Kolbrún Stefánsdóttir, 3.1.2010 kl. 17:43

5 identicon

Athyglisverður pistill.Gangi þér allt í haginn á nýju ári.

dinna (IP-tala skráð) 12.1.2010 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband