11.3.2007 | 20:56
Bakkafjara frammhald Ófært =5,8 m
þar sem veðurspáin fyrir vikuna er slæm , þá vil ég benda þeim sem eiga pantað með Bakkafjöruferjunni á að það vantar fólk í vinnu í eyjum,td vantar enn lyftaramann hjá Viðar Ella.
11.3.2007 | 15:03
Bakkafjara
Bakkafjara ófært=6,5 m.Fyrir hönd hinna sjóveiku sumabústaðaeigendur í Vestmannaeyjum,

11.3.2007 | 12:22
Fíkniefnavandamálið
Mig langar að óska lögregluni í Reykjanesbæ til hamingju með árangurinn í gærkvöldi og nótt. Fíkniefnavandinn er eitt stæðsta vandamál á Íslandi í dag og ber að lofa það sem vel er gert. Lögreglan í mínum heimabæ, Vestmannaeyjum, hefur einnig náð góðum árangri í stríðinu við fíkniefnin, sérstaklega á Þjóðhátíð, þar sem hún hefur notast við sérþjálfaða hunda með góðum árangri. Til hamingju með það.
11.3.2007 | 10:42
Herjólfur fór ekki
í morgunn en reiknað með að hann fari seinna í dag . Þeir sem áttu pantað með Bakka ferjunni og eru búnir að bíða í 3 daga, er vinsamlegast bent á að ekki er reiknað með að fært verði í Bakkafjöruhöfn í þessari viku, og fólki ætti kanski að fara að gera aðrar ráðstafanir enn að samþykkja þessa vitleisu. Samhvæmt mínum athugunum má reikna með að ófært sé að jafnaði í Bakkafjöruhöfn, ca 30 til 60 daga á ári miðað við 3,7m ölduhæð.Við skulum rétt vona að ekki komi í ljós að ófært sé í 3m því að það þyðir ófært 13 til 16 daga per mánuð.Stærra hraðskreiðara skip strax.

10.3.2007 | 10:14
Herjólfur bilaði í morgunn
En mun fara seinni ferð samkvæmt áætlun.Það lítur út fyrir falllegt veður í eyjum í dag.Þeir sem eiga pantað með Bakkaferjunni skal bent á að það er fínasta flugveður en að sjálfsögðu ófært í Bakkafjöruhöfn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2007 | 21:55
Bakkafjara
Enn er ófært í Bakkafjöru. Það er stór spurníng, hvort að ekki þurfi að reisa sér tjaldbúðir, bæði niður við höfn í eyjum og niður við Bakkafjöru fyrir þá sem sita þar fastir jafnvel dögum saman. Annars tel ég mjög miklar líkur á þvi að fólk, sem lendir í þeirri lífsreynslu að sijta fast í eyjum jafnvel dögum saman, muni ekki hafa áhuga á að reyna það aftur.
9.3.2007 | 16:05
Togararall
Hvenær ætli menn hjá hafró læri það að fiskurinn í sjónum hefur sporð og færir sig eftir td æti, hitastigi sjávar og svo framvegis.Það eru til fult af fiskibleiðum í sjónum þar sem ekkjert fiskast lengur, ástæðan er yfirleitt sú að fiskurinn hefur fært sig td vegna ætisskorts,hitastigs eða jafnvel vegna mikils átroðnings togara.

![]() |
Togararallið hafið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2007 | 15:32
Stæðstu mistök í samgöngumálum eyjamanna fyrr og siðar.
9.3.2007 | 14:55
Sól og bliða í eyjum
Það er sól og bliða í eyjum enn gengur á með smá skúrum annað slagið.Herjólfur er farinn og er á áætllun,Einnig er finasta flugveður og allt flug samhvæmt áætlun,enn viti menn það er ófært í bakkafjöru(=5,1m) enn aðeins vnv 6m á Stórhöfða.Þeir sem eiga pantað með Bakkafjöru ferjunni eru vinsamlegast beðnir um að reina aftur eftir viku.Hver veit nema þetta verði til þess að gisti nóttum fjölgi í eyjum.Kanski maður ætti að opna gistiheimili?

9.3.2007 | 12:35
Suðurstrandarvegur
Þegar samgönguáætlun er skoðuð nánar kemur í ljós að enn á að svíkja gefin loforð um að klára suðurstrandarveg. Ég held að allir sunnlendíngar geri sér grein fyrir mikilvægi þessa vegar enda er hann ásamt tvöföldun suðurlandsvegar (frá því sem nú er)það besta sem við getum gert til að minka slisahættuna á suðurlandsvegi.Þessu munum við breyta eftir kostningarnar í vor=xf.