Vorið er komið ( og Lundinn á leiðinni)

Sól og blíða í eyjum 8 stiga hiti á Stórhöfða, tún farin að grænnka og gargið í fuglunum hækkar, eftir því sem þeim fjölgar í fjöllunum. Ungt og efnilegt fólk gengur til kirkju, játar trú sína, og tekur við helling af peningum. Sjálfur er ég farinn að gjóa augunum æ oftar upp til fjalla í von um að sjá minn uppáhalds farfugl bregða fyrir, LUNDANN. Lundinn kemur yfirleitt á tímabilinu 10 til 17 Apríl. Sumardagurinn fyrsti er hjá mér daginn sem lundinn sest upp í fyrsta skipti ár hvert. Vonandi fáum við gott sumar . Góðar stundir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Þar sem lundinn er fegurstur fugla...  vorið var komið undir fjöllin þegar lóan kom.  En hér í höfðuborginni þegar fólkið hópast í göngutúra á kvöldin og vorlaukarnir þjóta upp.

Ester Sveinbjarnardóttir, 1.4.2007 kl. 20:11

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ójá það er yndislegt þegar vorar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.4.2007 kl. 00:58

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

ungt og efnilegt fólk gengur til kirkju, játar trú sína, og tekur við helling af peningum..... Áttu þá við fermingarbörnin?

Sigfús Sigurþórsson., 3.4.2007 kl. 18:54

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Svo segja unglingarnir.

Georg Eiður Arnarson, 3.4.2007 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband