Frábær kona og til fyrirmindar fyrir aðra

Víkurfréttir, 16. maí. 2007 15:48

Með æðruleysið að vopni: "Krabbamein er ekki dauðadómur"

-Marta Guðmundsdóttir gengur yfir Grænlandsjökul


Marta Guðmundsdóttir, ung kona úr Grindavík, leggur upp í mikla svaðilför um næstu helgi. Það er óhætt að segja að hún ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því hún hyggst ganga þvert yfir Grænlandsjökul. Það sem gerir þetta verkefni enn merkilegra er sú staðreynd að Marta lauk fyrir skemmstu erfiðri meðferð við krabbameini í brjósti.


Ferðalag þetta er farið á vegum Krabbameinsfélags Íslands með dyggum stuðningi Deloitte, bæði til að safna fé til að berjast gegn brjóstakrabbameini og eins til að vekja konur til umhugsunar um mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun.
Þá er ferðin ekki síst farin til að sýna fram á að krabbamein er ekki alltaf dauðadómur og það er vissulega líf eftir krabbamein.


"Hvort sem þið eruð ungar eða aldnar skiptir rosalega miklu máli að meinið finnist snemma," sagði Marta í samtali við Víkurfréttir. "Það var komið frekar langt hjá mér og fór miklu lengra en þurfti og þess vegna hvet ég alla til að fara í krabbameinsfélagið í skoðun því þau eru að gera frábæra hluti."


Marta greindist með stórt æxli í brjósti í október árið 2005, en eftir afar erfiðar lyfja- og geislunarmeferðir náði hún fullri heilsu sem hún mun nú reyna á að fullu.


Marta á eina dóttur, Andreu Björt, sem verður 12 ára í sumar og á meðan hún barðist við sjúkdóminn reyndi Marta að láta lífið ganga eins eðlilega og hún gat, fyrir Andreu.


"Ég ákvað að setja mér alltaf markmið til að hjálpa mér að vera einbeitt og þrauka einn dag í einu. Ég fór út að ganga á hverjum einasta degi, það var eiginlega fyrsta markmiðið sem ég setti mér. Ég kom stelpunni í skólann og fór svo út að ganga, sama í hvernig veðri sem er og hvernig sem mér leið. Þó ég þyrfti að skríða út fór ég.
Það hefði verið auðvelt að leggjast upp í rúm og vera þar en maður græðir ekkert á því!"


Marta verður í sjö manna hópi jökulfara, ein Íslendinga, en hópurinn mun leggja upp á jökulinn þann 23. mars og eftir þriggja daga göngu munu þau koma að bækistöð. Þaðan verður farið á sleðum og skíðum afganginn af þessari 600 km leið sem hugsað er að taki um 20 daga, en gist verður í tjöldum á leiðinni. Þau fara upp á efsta tind jökulsins og koma niður í Tasiilaq á austurströndinni
Það eru að sjálfsögðu margir sem koma að svona verkefni og vill Marta koma á framfæri sérstaks þakklætis til starfsfólks Deloitte. "Ég þarf líka góðan búnað og fatnað og þar kemur 66° N til sögunnar, en það er svo skemmtilegt að ég er einmitt að ganga 66. breiddargráðu."


Fyrir skemmstu gekk Marta á Snæfellsjökul til að búa sig undir átökin og komu þar með henni nokkrir starfsmenn frá Deloitte, en fólkið þar varð fyrir áfalli þegar tveir félagar þeirra létust nýlega úr krabbameini. Sýnir það hversu margir verða fyrir áhrifum af þessum veikindum, því á bak við einn sjúkling eru ótal margir aðstandendur.
Á meðan göngunni yfir Grænlandsjökul stendur verða seld póstkort til styrktar Krabbameinsfélaginu, en þau mun Marta svo undirrita og póstleggja í Tasiilaq. Kortið mun kosta 1000 kr. og renna tekjunar óskertar til rannsókna á brjóstakrabbameini.


Marta segist ekki kvíða ferðinni, hún sé þvert á móti afar róleg. "Ég hef bara æðruleysið að vopni og er ekki að spá of mikið í þetta."
Fyrir utan styrk frá fyrirtækjum og Krabbameinsfélaginu segist Marta hafa fengið ómetanlegan styrk frá bæjarbúum og þakkar þeim fyrir framlag hvers og eins. Að lokum vill hún þakka fyrir sig og tileinka ferðina sérstaklega litlum frænda sínum, Frank Bergmann, sem er einnig að kljást við krabbamein.


Eru lesendur hvattir til að leggja þessu góða málefni lið með virkum hætti til að efla forvarnir og lyfjaþróun gegn sjúkdómnum.


Myndir úr ferð Mörtu á Snæfellsjökul ásamt starfsfólki Deloitte.

 

Texti/Þorgils Jónsson.





« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

Dáist að þessari konu

Heiða Þórðar, 17.5.2007 kl. 10:50

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Maður gefst aldrei upp .

Georg Eiður Arnarson, 17.5.2007 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband