2.6.2007 | 14:13
Gott hjá Lífeyrissjóðnum
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja hefur hafnað tilboðum þeirra sem berjast um yfirráðin. MYND/Óskar p. friðriksson |
Fréttablaðið, 02. júní. 2007 08:00
Selur ekki bréf sín í Vinnslustöðinni
Stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja tók þá ákvörðun á fundi sínum á fimmtudaginn að selja ekki hlut sjóðsins í Vinnslustöðinni, hvorki til Eyjamanna ehf. né Stillu sem berjast um yfirráð yfir útgerðarfyrirtækinu. Guðrún Erlingsdóttir, stjórnarformaður lífeyrissjóðsins, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið. Eins og staðan er í dag þá teljum við ekki þörf á því að selja okkar hlut," segir Guðrún en tekur þó fram að staðan kunni að verða endurskoðuð eftir því hvernig málinu vindur fram.Sjóðurinn á 5,32 prósenta hlut í Vinnslustöðinni sem metinn er á 707 milljónir króna miðað við gengið 8,5 krónur á hlut sem eru síðustu viðskipti sem fóru fram með hlutabréf í félaginu. Þetta er sama fjárhæð og sjóðurinn fengi með því að taka tilboði Stillu.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og einn af forsvarsmönnum Eyjamanna, situr í sex manna stjórn lífeyrissjóðsins. Hann er tilnefndur af útvegsbændum í Eyjum. Guðrún segir að hann hafi ekki setið síðasta stjórnarfund þegar ákvörðun var tekin.
Lífeyrissjóðurinn keypti í Vinnslustöðinni löngu áður en hann tók við stjórnun félagsins. Guðrún segir að lífeyrissjóðurinn sé þolinmóður langtímafjárfestir. Það er mörg ár síðan við keyptum í Vinnslustöðinni þegar kannski fáir höfðu trú á henni."
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
vona að Vinnslustöðin verði áfram í eigu Vesmannaeyjinga,þar sem ég vann í 20 ár og þið systkinin öll byrjuð ykkar atvinnuþáttöku
mamma (IP-tala skráð) 2.6.2007 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.