26.11.2008 | 23:00
Fékk þetta sent í pósti
Ef ykkur leiðist, þá getið þið dundað ykkur við að lesa þetta, eða prentað út og tekið með á WC til að spara tíma:
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum.
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og drekka einn bolla af grænu tei án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrlega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það)
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.
Og annað hvítt fyrir taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.
Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.
Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta...
Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli.
Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi. Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!!
Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.
Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplinu getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir, sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir...
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.
Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
26.11.2008 | 22:55
Góður
> >> Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum
> >> sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu
> >> ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem
> >> líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu
> >> einungis þeir þaulsetnustu eftir.
> >> Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja
> >> hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.
> >>
> >> Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið
> >> á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn
> >> græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom
> >> til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann
> >> vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður
> >> störfuðu hjá fyrirtækinu.
> >>
> >> Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá
> >> manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en
> >> hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi.
> >> Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til
> >> starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9
> >> manns fóru á atvinnuleysisskrá.
> >>
> >> Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni
> >> staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég
> >> veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og
> >> skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð,
> >> útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr
> >> þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla
> >> þjóðina á atvinnuleysisskrá".
> >>
> >>
> >>
> >>
23.11.2008 | 16:24
Neikvætt og jákvætt
Svo ég byrji nú á því neikvæða fyrst, þá er það að sjálfsögðu hrun bankanna og afleiðingar þess undanfarnar vikur. Það er ljóst að botninum er ekki náð, en í mínum huga er það orðið alveg ljóst, að ég tel ekki verjandi lengur annað en að boðað verði til kosninga í vor, enda hefur þessi ríkisstjórn ekki lengur umboð þjóðarinnar, eins og nýjustu skoðanakannanir sýna. Annað neikvætt er sú staðreynd, að skyndilega eru samgöngumál eyjamanna komin 30 ár aftur í tímann og það eina sem íhaldsmenn í eyjum hafa til málanna að leggja, er eitthvað undarlegt hjal um að þetta reddist allt með Bakkafjöru og það nýjasta nýtt, að bjóða fólki að skrá sig í Gleðibankann í eyjum. Bæði undarlegt og hálf fáránlegt í sjálfu sér, en það er nú svo. Sumum finnst einfaldlega best að stinga hausnum í sandinn í von um að kreppan hverfi af sjálfu sér.
Það var ágætis fundur hjá Frjálslyndum síðasta fimmtudagskvöld, þótt mætingin hefði mátt vera betri og dapurlegast þótti mér að sjá, að þrátt fyrir áskorun mína í síðustu viku um að sjómenn og útgerðarmenn fjölmenntu á fundinn, þá hafði enginn af þeim kjark til að mæta. Fundurinn var hinsvegar mjög góður og upplýsandi, en ég get ekki neitað því, að mest af tímanum fór í umræður um bankakreppuna og að eftir allar þær upplýsingar sem komu þarna fram, þá fór svona léttur hrollur um mann.
Nýjasta nýtt í útgerðinni er að hugsanlega er búið að selja Narfa VE frá eyjum, en það jákvæða er að mér skilst að enginn kvóti fari með og að útgerðarmaðurinn sé að leita að minni og hagkvæmari bát, sem er nú bara jákvætt. Sjálfur fór ég á sjó á föstudaginn. Fiskiríið var ekkert sérstakt, eða ca. 1800 kg á 15 bala, en tíðin er afar erfið í eyjum um þessar mundir.
Það jákvæðasta í eyjum síðustu vikurnar að mínu mati, er að kannski má segja sem svo að loksins sé allt komið fram af mínum óskalista sem að ég setti fram, starfandi í atvinnumálanefnd Vestmannaeyja fyrir nokkrum árum síðan. Margar góðar hugmyndir komu fram hjá þeim nefndum, en því miður hefur lítið af þeim hugmyndum gengið fram, en ég valdi mig á sínum tíma inn í nefnd um fiskvinnslumál og setti fram þrjú atriði, sem að ég vildi sjá. Það fyrsta, að við tækjum hausana og afskurðinn sem við vorum að flytja til vinnslu í Hafnarfirði og færum að vinna þetta hérna í eyjum og er það allt komið fram (það versta að lyktin þarna er ekkert mjög spennandi). Annað atriði var að ég vildi að við færum aftur að vinna harðfisk í eyjum, það hefur gengið eftir og persónulega finnst mér harðfiskurinn í Godthaab sá besti í landinu. Þriðja og síðasta var, að ég vildi sjá fiskbúð aftur í eyjum og gekk það svo langt að ég var búin að fá vin minn, Val Andersen, til að bjóða í húsnæði með það í huga að opna slíka verslun. Ekki gekk þetta í gegn á sínum tíma, en kannski má segja sem svo, að ég hafi ekki verið hættur, vegna þess að sjálfur á ég í dag þetta húsnæði sem Valur reyndi að kaupa á sínum tíma, en hef sjálfur hvorki haft tíma né peninga til þess að starta slíku, en er þess vegna mjög ánægjulegt að sjá tvö fiskvinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum auglýsa margs konar fisk til sölu í eyjum og er boðið upp á heimsendingarþjónustu, sem mér finnst alveg frábær hugmynd. Þarna erum við að mínu mati á réttri leið. Vestmannaeyjar byggðust upp vegna nálægðar við fiskimiðin. Þetta er það sem við kunnum og þekkjum þ.e.a.s. veiða og vinna fisk. Það eina sem vantar upp á er að fyrirtækin hér setji meira fé í frekari fullvinnslu á afurðunum, þannig held ég að við eigum mestan möguleika á að fjölga störfum hér í eyjum, vonandi er þetta bara byrjunin.
p/s svo væri nú heldur ekkert verra, ef menn færu nú að reyna að klára þessi mál varðandi Skipalyftuna. Það er nú til háborinnar skammar að geta ekki lengur tekið upp skip í Vestmannaeyjum, en vonandi stendur það til bótar.
Meira seinna.
15.11.2008 | 22:34
Samgöngur, kvótinn og fundur með FF
Það er alveg með ólíkindum, þessi sending sem við eyjamenn vorum að fá frá ríkisstjórninni um að smíði nýrrar ferju sé frestað um óákveðinn tíma, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að í ríkisstjórnarmeirihlutanum sitji núna þeir tveir þingmenn, sem ættaðir eru úr eyjum og í raun og veru er ótrúlegt að hugsa til þess að aðeins er liðið tæpt ár síðan Árni Johnsen fór upp í pontu á Alþingi og lýsti því yfir, að eyjamenn þyrftu að fá nýjan Herjólf strax. Sama gildir um Lúðvík Bergvinsson, sem sat í bæjarstjórnar meirihlutanum á síðasta kjörtímabili og veit vel, hversu mikilvægar samgöngur okkar eru, en þegar á reynir, þá virðast báðir þessir þingmenn alveg hafa gleymt því, hvaðan þeir koma og hvar þeir sækja fylgi sitt. Ég skora á báða þessa þingmenn að svara kalli eyjamanna um bættar samgöngur og krefst þess að þeir svari því, hvenær og hvernig samgöngur okkar verða lagaðar, vegna þess, að miðað við nýjustu tíðindi, þá hafa samgöngur okkar aldrei verið verri en í dag. Einnig finnst mér hlutur bæjarstjórans, Elliða, mikill í þessu klúðri og hefur það oft verið alveg með ólíkindum að lesa þvæluna, sem kemur frá þessum meirihluta hér í bæ, sem m.a. hefur lýst því yfir marg ítrekað, að fullt af fólki sé að fara að flytja til Vestmannaeyja, vegna þess að Bakkafjara sé að koma. Það eina góða við þessa málaliktan er kannski það, að kannski fá eyjamenn eftir allt saman að kjósa um sín samgöngumál í næstu bæjarstjórnarkosningum, en það kemur þá bara í ljós.
Það er mikil umræða um mikilvægi sjávarútvegsins og ég sé að sumir hér í eyjum nefna nýjustu hugmyndir Frjálslynda flokksins, þ.e.a.s. hugmyndir um að innkalla aflaheimildir og skuldir. Í sjálfu sér er þetta ekki óeðlilegt, sérstaklega ef rétt er, að veðsetning á sjávarútvegi vegna falls gengisins sé hugsanlega orðið mun meiri, heldur en verðmæti alls kvótans, en að sjálfsögðu þarf að útfæra allar slíkar hugmyndir betur, en til að útskýra málið í stuttu máli, fyrir þá sem ekki skilja, þá er ekki óeðlilegt að tala um að útrás bankanna hafi byrjað á svipuðum tíma, eða fljótlega eftir að frjálsa framsalið á aflaheimildum var leyft. Ég tel hins vegar að mjög fáir í dag skilji allt það rugl, sem er í gangi í núverandi kvótakerfi. Ef við tökum veðið sem dæmi, þá er alveg ljóst að þeir sem keyptu aflaheimildir fyrir 2 árum síðan í þorski, þegar kvótinn var 190 þús. tonn og verðið á tonninu 4,2 milljónir, hljóta að standa illi í dag, þegar þorskkvótinn er komin niður í 130 þús. tonn og nýjasta sala sem ég hef heyrt um, er 1750 þúsund á tonnið, fyrir utan það að sá sem keypti fyrir 100 milljónir fyrir 2 árum, skuldar í dag að öllum líkindum yfir 200 milljónir og kvótinn hefur verið skorinn niður um 30%. Ekki gott mál, en hver veit, kannski kvótinn verði aukinn og kannski gengið lagist á næsta ári, en ekki er útlitið gott.
Það er mikill misskilningur í gangi hér í eyjum varðandi hugmyndir Frjálslynda flokksins um kvótakerfið og er ég enn að heyra fólk hér tala um það, að ef FF kemst í ríkisstjórn, þá verði allar aflaheimildir teknar frá eyjamönnum. Þetta er að sjálfsögðu argasta þvæla, því að sjálfsögðu mun þurfa sjómenn og útgerðarmenn til að veiða fiskinn áfram. FF vill hinsvegar taka á þeim, sem eru ekki að nýta sínar aflaheimildir og eru að nota smugur í kerfinu til þess að braska fyrst og fremst. Ágætt dæmi heyrði ég um daginn um mann ofan af landi, sem var búinn að selja bátinn sinn, en er einfaldlega með lögfræðinga sem sjá um alla pappírsvinnuna og hann fær einfaldlega ávísun í sept. á hverju ári og þarf ekkert að gera. Svona var þetta kerfi ekki lagt upp í upphafi og þessu þarf svo sannarlega að breyta.
Ég ætla að enda þetta með þessu: Ég skora hér með á sjómenn og útgerðarmenn í eyjum að mæta niðri í Kaffi Kró n.k. fimmtudag, 20 nóv. kl 20. Á staðnum verða Grétar Mar Jónsson, Alþingismaður og Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður FF. Fundurinn er opinn öllum og heitt á könnunni. Ef einhvern tímann er þörf á að ræða málin, þá er það svo sannarlega núna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2008 | 10:54
Góð dæmisaga
12.11.2008 | 20:07
Knattspyrnuhús og fleira
Mikið að gerast í eyjum þessa dagana og sé ég inni á eyjamiðlunum, að það er búið að opna tilboð í byggingu knattspyrnuhúss og ég sé að í tilboði frá Steina og Olla er gert ráð fyrir því að byggt yrði hús, sem mögulega væri hægt að stækka í framtíðnin og tek ég hér með undir áskoranir um að því tilboði verði tekið.
Fór á sjó í gær með 12 bjóð og fékk ca. 1600 kg. Það vakti athygli mína, að þar sem ég hafði fiskað hvað mest í október hérna innan við Flúðir og í Álnum (norðan við eyjar), fékkst nánast ekki neitt og ótrúlegt hvað fiskurinn virtist gjörsamlega hafa horfið á svæðinu. Mér var hinsvegar bent á skýringuna þegar ég kom í land. Í kringum síðustu helgi komu nokkrir aðkomu snurvoðabátar og fóru að kasta hérna innan við Flúðir og inn í Ál og eru hreinlega búnir að ryksuga allt svæðið upp, og það dapurlegasta af þessu er, að nánast ekki neitt af þessum fiski kemur hér í land.
Flestir tóku eftir því í sjónvarpinu um daginn, þegar upplýst var að sennilega hefði verið nokkur neðansjávar eldgos á sama tíma og eldgosið var á Heimaey 1973 og m.a. var bent á hraunmyndanir á hafsbotni, sem ekki var vitað um, en það skal tekið fram, að margir smábátasjómenn hafa þekkt þessa staði í mörg ár og í raun og veru er gríðarlega mikið af hraunbleyðum allt í kringum eyjarnar, sem hvergi eru á kortum. Kannski má líka segja sem svo, að þegar maður horfir á samgöngumál okkar, sem núna eru i uppnámi (það væri nú munur, ef við værum komin með stærri og gangmeiri Herjólf eins og sum framboð settu á oddinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006), að þessar hraunmyndanir út um allt gefi kannski þeim sem mest spenntir eru fyrir göngum grein fyrir því, hversu hæpinn sá möguleiki er, þótt vissulega göng væri besta samgöngubótin, en miðað við fjármálakreppuna þá geta menn víst gleymt öllum göngum milli lands og eyja, allavega á þessari öld, sýnist mér.
Það er hálf ótrúleg, sú breyting sem orðið hefur skyndilega með kreppunni gagnvart t.d. sjómönnum. Skyndilega er nóg af vönum sjómönnum og nánast slegist um hvert einasta pláss og veit ég t.d. um nokkra þaul vana sjómenn sem hafa fyrst og fremst stundað lausa róðra, en fá núna hvergi pláss. Ágætur vinur minn orðaði þetta þannig við mig í síðustu viku, að nú kannski fer fólk aftur að horfa með virðingu á þá sem lykta af slori.
Meira seinna.
10.11.2008 | 20:25
Kreppu kvóta jól
Það er svolítið merkilegt að skoða, hvaða áhrif kreppan hefur haft á smáauglýsingarnar í blöðunum og svo að ég taki sem dæmi; bílar hafa lækkað verulega í verði og eru margar auglýsingar, þar sem boðin er yfirtaka á láni orðaðar þannig, að með í kaupunum fylgi oft væn fúlga og jafnvel að seljandi borgi af bílnum næsta árið. Einnig tók ég eftir því að í sumar var oft auglýst undir nafninu nudd og tekið fram að ekki væri um erótískt nudd að ræða, núna hinsvegar stendur; exclusive tantra massage, for men, women or couples. Einnig er orðið mikið um auglýsingar, þar sem auglýstar eru evrur og dollarar til sölu, svo einhverjir ætla sér að græða á kreppunni.
Töluverð umræða er um áhrif kreppunnar hér í eyjum, og eru flestar sögurnar á þann veginn, að hinir og þessir útgerðarmenn hafi verið að taka allt of mikla áhættu í von um gróða, með því að taka erlend lán til kaupa á hlutabréfum, sem núna eru töpuð. Þetta er að sjálfsögðu mikið áhyggju efni og vonandi þýðir þetta ekki að skip eða aflaheimildir fari frá eyjum, því að eins og ég hef oft sagt áður, þá er útgerðin lífæð eyjamanna, því hér verður aldrei reist álver.
Fór á sjó í fyrrakvöld í frekar leiðinlegu veðri, eða eins og Dolli heitinn vinur minn kallaði það, hálfgerðu skítasjólagi, en afli var ágætur, eða tvö tonn á 15 bala, mest ýsa.
Að lokum þetta: Mér finnst oft ágætt, eins og mörgum öðrum eyjamönnum, að fá mér gönguferð í gegnum bæinn, bæði til líkamlegrar og andlegrar hressingar. Ég fékk mail um daginn, þar sem bloggarar eru að skora á hvern annan að reyna að hressa okkur við með því að setja ljós út í glugga og ég sé að margir hafa gert það. Einnig er farið að bera töluvert á jólaskreytingum hjá sumum í gluggunum og er það nú bara gaman (nema hjá Ystaklettsmönnum, en það er greinilegt að þeir hafi lent í jólakettinum fyrir að starta jólunum of snemma). Svo að ég klári þetta á jákvæðan hátt, þrátt fyrir allt krepputal, þá er ég alveg viss um það að Heimaklettur verður hérna ennþá á morgun.
Meira seinna.
5.11.2008 | 23:39
Smá hugleiðing
LAG AF RYKI VERNDAR VIÐINN UNDIR ÞVÍ...
HÚSIÐ VERÐUR HEIMILISLEGRA ÞEGAR ÞÚ GETUR SKRIFAÐ " ÉG
ELSKA ÞIG' Í RYKIÐ Á HÚSGÖGNUNUM.
ÉG VAR VÖN AÐ
EYÐA MINNST 8 TÍMUM HVERJA HELGI TIL ÞESS VERA VISS UM
AÐ ALLT VÆRI FULLKOMIÐ "
EF AÐ EINHVER SKYLDI KOMA ÓVÆNT Í HEIMSÓKN'
...
AÐ LOKUM UPPGÖTVAÐI EG AÐ ÞAÐ KOM ENGINN Í HEIMSÓKN ..ÞAÐ
VORU ALLIR ÚTI AÐ SKEMMTA SÉR!!!
JÆJA..,
EN ÞEGAR FÓLK KEMUR Í HEIMSÓKN, ÞÁ
ÞARF ÉG EKKI AÐ ÚTSKÝRA ÁSTANDIÐ Á HEIMILINU ....
ÞEIR HAFA MEIRI ÁHUGA Á AÐ HEYRA UM ÞÁ HLUTI SEM ÉG HEF VERIÐ
AÐ GERA
Á MEÐAN ÉG VAR ÚTI Á LÍFINU OG SKEMMTA MÉR!!
EF ÞÚ HEFUR EKKI UPPGÖTVAÐ ÞETTA ENNÞÁ ,
ÞÁ SKALTU FARA AÐ ÞESSU HEILRÆÐI:
LÍFIÐ ER STUTT. NJÓTTU ÞESS!!!!!
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR...
EN ÞAÐ EKKI MIKILL TÍMI TIL; AÐ FÁ SÉR
BJÓR , SYNDA Í ÁM OG KLÍFA FJÖLL , HLUSTA Á TÓNLIST OG LESA BÆKUR
FAGNA MEÐ VINUM OG LIFA LÍFINU...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR...
EN VÆRI EKKI BETRA AÐ MÁLA MYND EÐA SKRIFA
BRÉF, BAKA SMÁKÖKUR EÐA KÖKUR OG SLEIKJA SKEIÐINA, EÐA SÁ FRÆI.
HUGLEIDDU MUNINN Á MILLI ÞESS SEM ÞÚ VILT EÐA ÞARFT...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR,
EN HAFÐU Í HUGA AÐ ELLIN KEMUR MEÐ SÍNU GRÁU
HÁR OG HÚN ER EKKI ALLTAF GÓÐ...
ÞURRKAÐU AF EF ÞÚ VERÐUR ...EN
HEIMURINN BÍÐUR EFTIR ÞÉR ÞARNA ÚTI... MEÐ
SÓLSKINIÐ Í AUGUM ÞÍNUM, VINDINN Í HÁRI ÞÍNU, FLÖGRANDI
SNJÓKORN, FÍNGERÐUR REGNÚÐI...
ÞESSI DAGUR KEMUR EKKI AFTUR...OG ÞEGAR ÞÚ FERÐ
- OG ÞÚ VERÐUR AÐ FARA...ÞÁ MUNT ÞÚ SJÁLF SKAPA MEIRA
RYK!!
DEILDU ÞESSU MEÐ ÖLLUM ÞÍNUM GÓÐU VINUM SEM ERU Í ÞÍNU
LÍFI...
ÉG GERÐI ÞAÐ...
3.11.2008 | 21:05
Einn góður frá litlu systur
þegar þær eru ekki með karlana með sér. Þegar þær voru að labba heim
þurftu þær báðar nauðsynlega að pissa. Þær voru hjá kirkjugarðinum og
ákváðu að pissa bakvið legstein.
Sú sem fyrst pissaði þurrkaði sér á nærbuxunum sínum og henti þeim
eitthvað út í loftið að því loknu. Vinkona hennar var aftur á móti í
rokdýrum nærum sem hún vildi ekki tapa, en var svo heppin að hún gat teygt
sig í borða af kransi á næsta leiði og þurrkað sér á honum. Vinkonurnar
gátu nú haldið ferð sinni áfram og komust heim heilar á húfi.
Daginn eftir hringdi eiginmaður annarrar þeirra í hinn og sagði; "Þessum
kvennakvöldum þarf að fara að ljúka. Konan mín kom nærbuxnalaus heim í
nótt."
"Algjörlega sammála!," sagði hinn, "Mín kom heim með samúðarkort á milli
rasskinnanna og á því stóð, Frá okkur öllum á Slökkvistöðinni, við munum
aldrei gleyma þér."
1.11.2008 | 11:53
Krepputal
Það er orðið langt síðan að maður heyrði einhvern fréttatíma, þar sem ekki var talað um kreppu og sennilega er líka langt þangað til að maður heyrir einhvern fréttatíma, þar sem ekki er minnst á kreppu. það sem hinsvegar hefur vakið athygli mína sérstaklega að undanförnu eru yfirlýsingar íhaldsmanna um að nú sé svo sannarlega ekki rétti tíminn til að fara í Alþingiskosningar. Ég er enn að bíða eftir því, að einhver íhaldsmaður orði þetta bara hreint út sagt:" Það er einfaldlega ekki gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fara í kosningar núna, enda bera þeir að mestu leiti ábyrgðina á kreppunni" enda held ég að fáir muni eftir ríkisstjórn, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í aðalhlutverki. En einhvern tímann verður kosið, en þá er spurning, verður fólk búið að gleyma, eða verður nóg að bjóða fólki í t.d. "tuðruferðir."
Af bæjarmálunum okkar, þá hefur Elliði bæjarstjóri farið mikinn á eyjamiðlunum að undanförnu og það nýjasta nýtt eru þessar tölulegu staðreyndir, um hversu há leigan er á skólum og öðrum stofnunum, sem á sínum tíma voru seld Fasteign og ef ég skyldi grein hans rétt, að kosti okkur í dag hátt í 15 milljónir á mánuði í leigu. Við þessu höfum við í Frjálslynda flokknum varað, sem og öðrum málum eins og t.d. sölu hlutabréfanna í Hitaveitu suðurnesja, þó að hluturinn hafi vissulega verið lítill og góður peningur fengist fyrir bréfin, þá hlýtur það að gefa auga leið að það þýðir lítið að barma sér, ef hitaveitan hækkar á svipaðan hátt að það þýðir lítið að barma sér, þegar leigan á skólunum hækkar. Sama gildir að sjálfsögðu með Bakkafjöru. Ef dæmið gengur upp þar og þar rís löndunarhöfn, þá þýðir lítið að segja:" Þetta átti ekki að fara svona." Það er full seint að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í.
Af öðrum málum. Síðast liðna viku hef ég farið 4 sinnum á sjó, fiskiríið verið alveg ljómandi, eða liðlega 8 tonn, mest ýsa. Einnig er farið að sjást töluvert af fallegum þorsk, svo nú hlýtur sjávarútvegsráðherra að fara að rumska úr þyrniróssvefninum. Nú hinsvegar er komin bræla og spáir brælu nánast alla næstu viku. Unnið er á vöktum í síldinni í Ísfélaginu og Vinnslustöðin er búin að senda bát á miðin. Ekki veitir fólkinu af tekjunum í þessu kreppuástandi, en nóg um það.
Ég sagði frá því í minni síðustu grein, að Ystaklettsmenn hefðu verið fyrstir til að starta jólunum í ár, en eitthvað eru menn styggir þar á bæ, en ég sé núna að það er búið að slökkva á ljósunum. Mér þykir það nú bara dapurt og skora á þá að kveikja á ljósunum aftur, því að það er nú bara gaman að þessu, svo má kannski líka nota kofann í Ystakletti til að hefja strangar æfingar í allan vetur fyrir það lið, sem við sendum á næsta ári í næsta útsvars þátt, eftir útreiðina í gær. Ekki veitir af.
Meira seinna.