Framhald af fyrri grein

Reyndar hafði ég ákveðið að vera ekkert að tjá mig meira um Bakkafjöru, enda búinn að segja mitt, en mér var hins vegar bent á það nýlega, að enn væri tækifæri til að gera gott úr þeirri stefnu sem Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur tekið í samgöngumálum okkar, og ítreka því áskorun mína á  bæjarstjórann, um að við Eyjamenn fáum að kjósa um okkar samgöngumál, þ.e.a.s. lítið skip til Landeyjarhöfn eða stórt skip til Þorlákshafnar og einkaaðilum þar með fengið að sjá um Landeyjarhöfn.

Í sjálfu sér á ég ekkert sérstaklega von á svari frá honum Elliða, enda er hann ekki vanur að svara pólitískum andstæðingum sínum, frekar en kratarnir í minnihlutanum sem styðja þessa höfn með dáðum og ráðum.

Þegar maður les síðustu tvær greinar sem Elliði hefur sent frá sér, t.d. í Fréttum 2. sept. þá gerir Elliði lítið úr undirskriftarsöfnunum eins og t.d. undir nafninu "Ströndum ekki" og dásamar það að bæjarstjórnin hafi staðið föst fyrir. 

Í nýjustu Fréttum, eftir að Herjólfur var hér um bil strandaður, þá skrifar Elliði um kjark, æðruleysi og vit og kallar eftir samstöðu Eyjamanna, ótrúlegur tvískinnungur bæjarstjórans í Vestmannaeyjum.

En í síðustu grein minni fékk ég nokkrar fyrirspurnir, sem ég ætla að reyna að svara hér. Það er fullyrt m.a. að ekki sé hægt að taka stærra skip inn í höfnina í Þorlákshöfn heldur en núvernadi Herjólf. Til þess að svara þessu, þá hringdi ég að sjálfsögðu í Indriða, hafnarstjóra í Þorlákshöfn. Svarið er þetta: Það er ekkert mál þó að Herjólfur væri allt að 100m langur, en þeir hafa lengst tekið inn skip sem eru 140m löng, og uppi eru hugmyndir um að byggja í framtíðinni varnargarð fyrir utan innsiglinguna til að verjast suðaustan áttinni. Væri þá hægt að taka mun lengri skip inn. 

Varðandi kostnaðar muninn á Þorlákshafnar leiðinni og Landeyjarhöfn, þá hefur mér alltaf fundist lykilatriðið vera traustar og öruggar samgöngur alla daga ársins, og tel hana ekki vera þannig að hægt sé að meta hana til fjárs, enda til hvers að hafa höfn í aðeins 1/2 tíma fjarlægð ef hún er meira og minna ófær allan veturinn? 

Sigurður Ás Grétarsson, yfirmaður Siglingamálastofnunar, og einn af þekktustu pennum íhaldsflokksins, fer mikinn á Eyjamiðlunum þessa dagana og fullyrðir m.a., eins og Elliði og fleiri, að öll þessi vandamál í Landeyjarhöfn séu til komin vegna gossins í Eyjafjallajökli. Til að svara því, þá vill ég rifja það upp, sem Gísli Jónasson marg ítrekað sagði frá, þ.e.a.s. að það yrði að GPS mæla hreyfinguna á sandinum, til þess að menn gerðu sér grein fyrir því, hversu stórt vandamálið væri í raun og veru, en það var aldrei gert og í fréttunum í hádeginu í dag er síðan sagt frá því, að nú er reiknað með því að það þurfi að tí-falda það magn sem áætlað var að þyrfti að moka úr höfninni á ársgrundvelli og að kostnaður við grafarann sé ca. 2 milljónir á dag, já, sá á eftir að græða.

Sigurður Ás lýsir því líka yfir, að náttúran muni taka Landeyjarhöfn í sátt. Afar furðulegt að lesa þetta, enda verð ég að segja eins og er, eftir að hafa starfað hér sem sjómaður í 24 ár, að ég er stöðugt að aðlaga mig að breytingum í náttúrunni, en ekki öfugt.

Að lokum þetta: Því er haldið fram að ég sé alfarið á móti Bakkafjöru og ætla ég að leiðrétta það einu sinni enn. Um síðustu áramót skrifaði ég áramótagrein mína, þar sem ég lýsti því yfir að ég teldi Bakkafjöru gríðarlegt tækifæri fyrir ferðaþjónustuna yfir sumarmánuðina. Hins vegar tel ég hana ekki góðan valkost á heils árs grundvelli, eins og nú þegar hefur sýnt sig. 

Herjólfs ferð er örugg ferð og annað er óásættanlegt.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur, það er bara hnefinn í borðið.

Aðalsteinn Agnarsson, 13.9.2010 kl. 00:00

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, gaman þótti mér að lesa þessa grein hjá þér.

Ég er auðvita sammála Indriða upp í Þorlákshöfn, því ég ver og er ekki sammála skipstjóranum á Herjólfi, þó hann hafi siglt í þrjátíu - fjörtíu ár hjá Eimskip.

kær kveðja.

Helgi Þór Gunnarsson, 13.9.2010 kl. 00:07

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Georg. Flott og vel skrifuð grein hjá þér.

Verðið þið ekki bara að fara að fljúga meira  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 13.9.2010 kl. 18:50

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Aðalatriðið var að höfnin kom.Og það er engin hætta á að hún fari burt.600 m.langur garður út. austan við höfnina ætti að laga hana eitthvað.Nóg er af grjótinu á Íslandi og nóg er atvinnuleysi fólks og verktaka.

Sigurgeir Jónsson, 14.9.2010 kl. 21:19

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl kolla ,og takk fyrir það . kv .

sæll Sigurgeir , eftir því sem ég veit best þá yrðu 600m.garðar allt of dýrir og sandburður inn í höfnina mindi aukast . kv .

Georg Eiður Arnarson, 14.9.2010 kl. 21:34

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, ég hef og spái því að eftir svo sem fimm til tíu ár munu þeir byggja garða út frá þessum, alla leið út fyrir sandrifið, þá fyrst verður þessi höfn góð!

kær kveðja.

Helgi Þór Gunnarsson, 14.9.2010 kl. 22:37

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Helgi ,eftir því sem Gísli Jónasar sagði þá er það eina leiðin en Gísli Viggósson sagði að þá myndi sandburðurinn aukast verulega ?

Ótrúlekt að heyra í fréttunum í dag að siglingamálastofnun væri búinn að banna skipstjóranum á Perlunni að tala við fréttamenn . kv.

Georg Eiður Arnarson, 15.9.2010 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband